Föstudags- og laugardagskvöld verða Ljótu hálfvitarnir eins og svo oft áður með tónleika á Café Rosenberg við Klapparstíginn. Fastagestir vita hverju má búast við en aðra er rétt að vara við að þarna verða níu fyrirferðarmiklir karlmenn á of litlu sviði með alltof mörg hljóðfæri sem þeir muna ekkert hver á að nota í það og það skiptið.