Beint á leiðarkerfi vefsins

<< Fyrra Blogg árið 2009 Næsta >>
Sjá blogg eftir árum | mánuðum | dögum

20.nóvember 2009

Hættessu væli komið á vefinn

Nú er hægt að hala niður glænýja hálfvitaslagaranum Hættessu væli hér á heimasíðunni.

6.nóvember 2009

NASA og Miðgarður með Hvanndalsbræðrum um helgina

Það verður norðlenskt stuð með tilheyrandi hörðum samhljóðum á sviðinu á NASA á föstudagskvöldið þegar Ljótu hálfvitarnir og Hvanndalsbræður halda þar sameiginlega tónleika.

1.október 2009

Ljótir á Hattinum

Ljótu hálfvitarnir halda tvenna tónleika á Græna Hattinum á Akureyri föstudags- og laugardagskvöldin næstu og stefna eindregið að því að hafa þessa konserta að minnsta kosti jafn skemmtilega og venjulega.

23.september 2009

Tvær tvöfaldar framundan

Eftir agalega spurningaþáttatörn, þar sem Hálfvitar voru krýndir Popppunktsmeistarar og slefuðu áfram í aðra umferð í Útsvari, er komið að því að við gerumst hljómsveit á ný.

9.september 2009

Komnir í úrslit!

Spurningakeppnisdeild Ljótu hálfvitanna heldur áfram að brillera.

2.september 2009

Hálfvitar í einangrun

Hálfvitar lesta bíla sína og halda í leiðangur í dag. 

15.ágúst 2009

Hálfvitasumarið á enda

Sælir en þreyttir Hálfvitar halda nú í um mánaðarfrí eftir vel heppnaða sumartörn.

30.júní 2009

Norðurlandstúr um helgina

Á fimmtudaginn leggja Hálfvitarnir í stuttan Hálfvitatúr um Norðurland. Túrinn hefst með tónleikum í Félagsheimilinu Blönduósi á fimmtudagskvöld, en það er í fyrsta skipti sem Hálfvitarnir spila þar.

29.maí 2009

Forsala miða á útgáfutónleikana að Ýdölum hafin

Nú er hægt að kaupa miða í forsölu á útgáfutónleikana að Ýdölum. Miðasalan fer fram í Bókabúðinni á Húsavík og á www.midi.is.

29.maí 2009

Lukkutrollið klárt til niðurhals!

Til upphitunar fyrir útgáfutónleikana okkar þá höfum við sett Lukkutrollið inn á vefinn til niðurhals. Allt frítt við. Gjöriði svo vel!

13.maí 2009

Lukkutroll á öldum ljósvakans

Hið sérkennilega og hálfvitalega Lukkutroll er nú farið að hljóma á öldum ljósvakans. Lukkutrollið er fyrsta lagið af nýju plötunni okkar sem fer í spilun á útvarpsstöðvunum, en platan kemur út eftir u.þ.b. tvær vikur.

13.maí 2009

Tvennir útgáfutónleikar framundan

Já, önnur plata okkar er núna farin til útlanda að fjölga sér og er von á henni aftur til landsins eftir u.þ.b. tvær vikur í massavís. Í tilefni af útgáfunni þá ætlum við að halda tvenna útgáfutónleika, aðra í Reykjavík og hina nálægt Húsavík.

8.apríl 2009

Myndir úr stúdíóinu

Jæja, góðir gestir. Loksins erum við búnir að bæsa myndir úr stúdíóinu og setja þær inn á vefinn okkar.

24.mars 2009

Dagur III

Á þriðja degi var haldið áfram að taka upp bassa og trommur í nokkur lög.

22.mars 2009

Dagur II

... og áfram höldum við ótrauðir. 

21.mars 2009

Fyrsta degi lokið

Fyrsta stúdíódegi er er lokið með fullnaðarsigri.

21.mars 2009

Og byrjaðir!

Bróðurpartur Hálfvitanna mætti glaðbeittur í Hafnarfjörðinn í mörgun með slatta af hljóðfærum og góða skapið.

20.mars 2009

Stóri dagurinn á morgun

Langþráður dagur rennur upp á morgun. Ekki reyndar fyrsti skóladagurinn eins og sungið var um á síðustu plötu ...

10.mars 2009

Löng Hálfvitahelgi

Veður, ófærð og vanbúnir bílar settu svip sinn á norðurferð Hálfvitanna síðustu helgi.

3.mars 2009

Hálfvitar á Akureyri

Ljótu hálfvitarnir munu leggja land undir fætur (alla 18) um næstu helgi og halda til höfuðborgar Norðurlands. 

28.febrúar 2009

Fallnir með 74

97-74 fyrir Kópavogsmönnum varð niðurstaðan í undanúrslitarimmunni í Útsvari. Hálfvitarnir lentu strax undir og þó þeir næðu að klóra ögn í bakkann var aldrei von til þess að vitringarnir þrír úr Voginum misstigju sig að ráði.

24.febrúar 2009

Stífur undirbúningur

Þekkingarsetur Hálfvitanna hefur verið undirlagt síðustu daga af undirbúningi fyrir undanúrslitarimmu sína við lið Kópavogs.

21.febrúar 2009

Hálfvitarnir sigra Ísafjörð

Ljótu hálfvitarnir stóðu enganvegin undir nafni þegar þeir sigruðu lið Ísafjarðar í spurningakeppninni Útsvari í gærkvöld. Sem kunnugt er eru þrír Hálfvitanna fulltrúar Norður-þings í þessari sveitafélagakeppni og eru nú komnir í undanúrslit.

16.febrúar 2009

Vel lukkuð hálfvitahelgi

Ljótu hálfvitarnir eru vígamóðir en sælir eftir öfluga tveggja tónleika törn um helgina.

13.febrúar 2009

Nýr og glæsilegur Hálfvitavefur í loftið

Jæja góðir gestir. Nýr og glæsilegur vefur Ljótu hálfvitanna opnaði formlega í dag og mun hljómsveitin fagna opnuninni með tvennum tónleikum á Rósenberg um helgina.


Hægri dálkur