Beint á leiðarkerfi vefsins

20.nóvember 2009

Hættessu væli komið á vefinn

Nú er hægt að hala niður glænýja hálfvitaslagaranum Hættessu væli hér á heimasíðunni. Lagið var samið í tilefni af Degi rauða nefsins sem er á vegum UNICEF og verður hann haldinn hátíðlegur þann 4. desember næstkomandi. Þá um kvöldið verður bein skemmti- og söfnunarútsending á Stöð 2 í opinni dagskrá og er markmiðið að safna sem flestum heimsforeldrum sem þá styrkja starf UNICEF í þágu bágstaddra barna með reglubundnum mánaðarlegum framlögum.

 

Óhætt er að fullyrða að sú útsending verði eitthvað sem enginn ætti að missa af og að sjálfsögðu munum við Hálfvitar mæta, telja í og biðja þjóðina um að hættessu væli, ekki veitir af.

Athugasemdir


Hægri dálkur


Hálfvitasmellir

Hættessu væli (mp3)
- BRANDAÐ LAG!

Lukkutroll (mp3)

Stjáni (mp3)

Bjór, meiri bjór (mp3)

Stóri dagurinn (mp3)

Sonur hafsins (mp3)

Afslöppuð jól (mp3)

Póstlisti

Viltu vera fyrst(ur) til að fá hálfvitafréttirnar?
Skráðu þig á póstlistann