Beint á leiðarkerfi vefsins

Smalavísur

Smalavísur eru upphaflega lag sem Baldur samdi snemma á þróunarferli Hálfvitanna og fjallaði um lífið í sveitinni. Fyrsta versið var svona:

Kærar þær eru mér kindurnar
og kallið mig smala
því ég er að tala um kindurnar.

Strax var ljóst að þetta yrði „þátttökulag" því fyrri línurnar tvær skulu endurteknar af áhorfendum áður en þriðja línan - pönsið - er sungið.

Það er náttúrulega ekki nóg með að hér sé lag - hér var semsagt orðinn til nýr bragarháttur. Fljótlega var ákveðið að nýta veraldarvefinn til að kalla eftir nýjum smalavísum og viðbrögðin létu ekkert á sér standa. Hundruðir vísna hafa borist og ótal höfundar spreytt sig á þessu skemmtilega formi.

Á vefnum var hægt að "generate-a" smalavísur með hinum margfræga Smalavísnagenerator. Sú tímamótagræja er í viðamikilli yfirferð og því verður aðeins bið á að hægt verði að dunda sér við þessa ágætu dægrastyttingu.

Stefnt er að því að setja inn hljóðdæmi og kynningarmyndband þar sem útskýrt er fyrir hinum almenna borgara hvernig nota má smalavísur sér til dægradvalar. Og einnig verður fljótlega boðið upp á innsendingu á smalavísum. En fyrst dettum við í það!


Hægri dálkur