Sunnudaginn 6. desember hyggjast Ljótu hálfvitarnir halda miðdegistónleika í Salnum í Kópavogi. Þetta er ekki síst hugsað til þess að aðdáendum hálfvitanna í yngri kantinum gefist kostur á að sjá þá á tónleikum en tækifæri til þess hafa ekki verið mörg hingað til. Á tónleikunum hyggjast þeir ljótu flytja öll sín hálfvitalegustu lög, bæði af plötunum tveimur og svo óútgefin. Það má í það minnsta ganga að því nokkuð vísu að smellir á borð við Son hafsins og Lukkutrollið munu hljóma. Á þessum árstíma er líka aldrei að vita nema jólalög skjóti upp úfnum kollinum.
Tónleikarnir hefjast kl. 15.00 og aðgangseyrir er 1.500 kr. Forsala er á www.midi.is.
Gott kvöld (mp3) - BRANDAÐ LAG!
Hættessu væli (mp3
Lukkutroll (mp3)
Stjáni (mp3)
Bjór, meiri bjór (mp3)
Stóri dagurinn (mp3)
Sonur hafsins (mp3)
Afslöppuð jól (mp3)
Viltu vera fyrst(ur) til að fá hálfvitafréttirnar?Skráðu þig á póstlistann
Smelltu hér og sjáðu hvað Hálfvitarnir geta gert fyrir þig...