13.febrúar 2009 21:30
Rósenberg
Hálfvitahelgi á Rósenberg - fyrri hluti
Hálfvitar taka feita helgi á Rósenberg, fyrst spila þeir á föstudagskvöldið en svo á laugardagskvöldið. Bara svo að fólk ruglist ekki. 1500 kall inn og svona...
14.febrúar 2009 21:30
Rósenberg
Hálfvitahelgi á Rósenberg - seinni hluti
Já svona getur þetta verið ef menn nenna ekki að róta, þá verða þeir bara að spila tvö kvöld í röð. En svo verða menn að drulla sér því annars fá þeir á sig lögfræðing. Kostar enn 1500 kall ef verðbólgan rýkur ekki upp þarna um daginn...
6.mars 2009 21.30
Græni hatturinn, Akureyri
Ljótu hálfvitarnir enn og aftur á þeim Græna...
Nú líður að því að Hálfvitarnir fari í stúdíó og því eru þeir nú á fullu að prufakeyra fullt af nýjum lögum (og sum þeirra eru afar „athyglisverð"). Engin hætta á öðru þó en gömlu, góðu Hálfvitaslagararnir fá að fylgja með...
1500 kall inn eins og venjulega...
10.apríl 2009 - kl. 21.30
Skjólbrekka, Mývatnssveit
Páskatónleikar í Mývatnssveit
Ljótu hálfvitarnir halda sína árlegu páskatónleika í Skjólbrekku í Mývatnssveit, föstudaginn langa 10. apríl. Tónleikarnir hefjast kl. 21.30 og kostar 1.500 kr. inn.
11.apríl 2009 - kl. 21.30
Fosshótel Húsavík
Páskatónleikar á Húsavík
Það er ljóst að það verða stóru brandapáskar í ár þar sem tónleikar með Ljótu hálfvitunum á heimavelli hitta á laugardaginn fyrir Páskadag. Samkvæmt Hálfvitaalmanakinu þá gerðist þetta síðast páskana 2007.
Tónleikarnir fara fram á Fosshótel Húsavík og hefjast kl. 21.30. Aðgangseyrir er 1.500 kr.
17.apríl 2009 - kl. 21.30
Rósenberg, Reykjavík
Hálfvitar og Hvanndals á Rósenberg
Í fyrsta skipti síðan síðast taka Norðlensku gleðigjafarnir í Hvanndalsbræðrum og Ljótu hálfvitunum sig saman og efna til söngskemmtunar. Í þetta skiptið verður hún á Rósenberg sem er huggulegur staður í miðbæ höfuðborgarinnar. Leikin verða ýmis lög frá ýmsum tímum en þó fyrst og fremst lög með hljómsveitunum.
Tónleikarnir hefjast kl. 21.30 og það kostar 1800 kall inn.
18.apríl 2009 - kl. 21.30
Rósenberg, Reykjavík
Hálfvitar og Hvanndals á Rósenberg - strax aftur
Í annað skipti síðan síðast hittast 2 af helstu gleðigjöfum Norðulands og fyrir helbera tilviljun þá er það á Rósenberg, nákvæmlega sama stað og þeir spiluðu saman kvöldið áður. Sum lög verða endurtekin frá kvöldinu áður en alls ekki öll. En það verða önnur spiluð í staðinn.
Aftur byrjar þetta klukkan 21.30 og aftur kostar 1800 inn.
30.maí 2009 - kl. 21.00
Íslenska óperan
Útgáfutónleikar í Óperunni
Í tilefni af því að Ljótu hálfvitarnir gefa út sína aðra plötu halda þeir útgáfutónleika í Íslensku óperunni (Hálfvitarnir velja íslenskt). Flutt verður efni af nýju plötunni, gömlu plötunni, óútkomnum plötum og jafnvel plötum sem aldrei verða gerðar.
Forsala hér: http://midi.is/tonleikar/1/5539/
Aðgangseyrir er 2.000 krónur.
3.júní 2009 - kl. 21.30
Græni hatturinn, Akureyri
Ljótu hálfvitarnir á Græna hattinum
Ljótu taka eina af sínum alræmdu grænahattshelgum og í þetta skiptið spila þeir fyrst á föstudagskvöldinu og svo á laugardagskvöldinu. Það er alveg garanterað að það verður alveg smekkað og eins gott að tryggja sér miða í tíma.
Forsala verður í vikunni fyrir tónleika og betur auglýst síðar. Miðaverð 1500.
5.júní 2009 - kl. 21.00
Ýdalir
Útgáfutónleikar að Ýdölum
Í tilefni af því að Ljótu hálfvitarnir gefa út sína aðra plötu halda þeir útgáfutónleika að Ýdölum í Aðaldal (rétt hjá Húsavík). Flutt verður efni af nýju plötunni, gömlu plötunni, óútkomnum plötum og jafnvel plötum sem aldrei verða gerðar.
Forsala miða verður á Miði.is og í Bókaverslun Þórarins Stefánssonar á Húsavík (Ingvarssjoppu). Forsalan hefst á næstunni og verður auglýst hér sem og víðar.
Aðgangseyrir er 2.000 krónur.
11.júní 2009 - kl. 21.00
Frumleikhúsið, Keflavík
Ljótu hálfvitarnir í Keflavík
Hálfvitar snúa aftur til Keflavíkur, aðallega vegna þess að það var svaka gaman síðast. Sumir mundu segja það djarfan leik að spila í háborg íslenskrar popptónlistar en hálfvitarnir eru óttalausir, þeir hafa ekki vit á öðru...
Húsið opnar kl. 20 og miðaverð aðeins kr. 1500
12.júní 2009 - kl. 21.00
Félagsheimilið Klifi, Ólafsvík
Ljótu hálfvitarnir í Ólafsvík
Í annað skipti á ævinni heimsækja hálfvitar Snæfellsnesið en þetta er í fyrsta skipti sem þeir fara beinlínis til Ólafsvíkur. Þetta verður því sennilega spennuþrungnasta augnablikið sem menn hafa upplifað þarna á Snæfellsnesi síðan Jules Verne og vinir hans uppgötvuðu göngustiginn til Sikileyjar...
Miðaverð er 1500 kr.
13.júní 2009 - kl. 21.00
Víkurröst, Dalvík
Ljótu hálfvitarnir á Dalvík
Ekki það að hálfvitar hafi ekki spilað á Dalvík áður, en nú ætla þeir í fyrsta skipti að spila í félagsheimilinu Víkurröst. Það verður sko ábyggilega rokna stuð.
1.500 kall.
2.júlí 2009 - kl. 21.00
Félagsheimilið, Blönduósi
Ljótu hálfvitarnir á Blönduósi
Þótt ótrúlegt megi virðast hafa þeir ljótu aldrei spilað á svæðinu á milli Ísafjarðar og Dalvíkur fyrr nú. Nú verður aldeilis stoppað í þetta gat og Húnvetningum kynntur almennilegur hálfvitaskapur...
Miðar seldir við innganginn og kosta þeir 1.500 kr.
3.júlí 2009 - kl. 21.30
Græni hatturinn, Akureyri
Ljótu hálfvitarnir á Græna hattinum
Ljótu taka eina af sínum alræmdu grænahattshelgum og í þetta skiptið spila þeir fyrst á föstudagskvöldinu og svo á laugardagskvöldinu. Það er alveg garanterað að það verður alveg smekkað og eins gott að tryggja sér miða í tíma.
Forsala miða er í Eymundsson í göngugötunni á Akureyri og kostar stykkið 1.500 kr.
4.júlí 2009 - kl. 14.00
Bátahúsið, Siglufirði
Ljótu hálfvitarnir á Þjóðlagahátíðinni á Siglufirði
Hálfvitar loksins mættir á Siglufjörð þar sem öldungurinn óhrumi og spaki, Toggi hálfviti kom í heiminn. Svo heppilega vill til að akkúrat þarna er þjóðlagahátíð haldin um þessar mundir og sæta hálfvitar því lagi að spila þar því þær raddir heyrast gjarnan innan hljómsveitarinnar að hún spili þjóðlagatónlist. Eða eitthvað svoleiðis...
Tónleikarnir hefjast kl. 14.
4.júlí 2009 - kl. 21.30
Græni hatturinn, Akureyri
Ljótu hálfvitarnir á Græna hattinum aftur
Að því gefnu að hálfvitarnir hafi lifað af kvöldið áður og sloppið óskaddaðir úr skottúr til Siglufjarðar ætla þeir að gera allt endanlega vitlaust í miðbæ Akureyrar á laugardagskvöldið. Það er reyndar ekkert nýtt þeir geri allt vitlaust, þeir gera sjaldnast nokkuð rétt...
Forsala miða er í Eymundsson í göngugötunni á Akureyri og kostar stykkið 1.500 kr.
16.júlí 2009 - kl. 21.00
Þórsver, Þórshöfn
Ljótu hálfvitarnir á Kátum dögum á Þórshöfn
Bæjarhátíðin Kátir dagar á Þórshöfn er haldin dagana 16. - 19. júlí og auðvitað verða Hálfvitarnir síkátu þar og leika við hvurn sinn fingur. Þeir eru tiltölulega snemma í því, spila fimmtudaginn 16. júlí í Félagsheimilinu Þórsveri kl. 21. Miðaverð 1.500 kr. eins og venjulega.
17.júlí 2009 - kl. 21.00
Valaskjálf, Egilstöðum
Ljótu hálfvitarnir á Egilstöðum
Loksins hunskast Hálfvitarnir almennilega inn á Austurland og spila í hinu fornfræga félagsheimili Valaskjálf. Eins og venjulega kostar 1.500 kall inn og svona...
25.júlí 2009 - kl. 20.00
Hafnarsvæðið, Húsavík
Ljótu hálfvitarnir á Mærudögum
Loksins spila Ljótu hálfvitarnir á Mærudögum, bæjarhátíð Húsvíkinga. Útitónleikar á hafnarsvæðinu kl. 20, laugardaginn 25. júlí. Allir velkomnir og enginn þarf að borga krónu.
31.júlí 2009 - kl. 21.00
Félagsheimilið Flúðum
Ljótu hálfvitarnir á Flúðum
Hálfvitar halda á Flúðir um verslunarmannahelgina og fagna henni með tveimur tónleikum í Félagsheimilinu þar. Þeir fyrri fara fram föstudagskvöldið 31. júlí og hefjast kl. 21.00. Aðgangseyrir er 1.500 kr. Eru ekki allir á Flúðum?
1.ágúst 2009 - kl. 21.00
Félagsheimilið Flúðum
Ljótu hálfvitarnir á Flúðum aftur
Hálfvitar halda á Flúðir um verslunarmannahelgina og fagna henni með tvennum tónleikum í Félagsheimilinu þar. Þeir síðari fara fram laugardagskvöldið 1. ágúst og hefjast kl. 21.00. Aðgangseyrir er 1.500 kr.
2.ágúst 2009 - kl. 21.30
Rósenberg, Reykjavík
Ljótu hálfvitarnir á Rósenberg
Hálfvitar slútta verslunarmannahelginni með tónleikum á heimavelli sínum syðri, Rósenberg við Klapparstíg í Reykjavík. Hætt er við að margir verði þunnir, slatti fullir og mögulega einhverjir edrú? En vonandi allir glaðir. 1.500 kr. inn og fá sér!
25.september 2009 - kl. 21.30
Rósenberg, Reykjavík
Ljótu hálfvitarnir á Rósenberg
Bara svona venjulegir tónleikar á Rósenberg, fullt af fólki, bjór, brjáluð stemmning, ný lög, white russian og svona...
Kostar 1.500 kr. inn.
26.september 2009 - kl. 21.30
Rósenberg, Reykjavík
Ljótu hálfvitarnir á Rósenberg aftur
Nú af því það var svo agalega gaman kvöldið áður finna Hálfvitarnir sig knúna til að halda tónleika strax kvöldið eftir.
Kostar aftur 1.500 kr. inn.
2.október 2009 - kl. 22.00
Græni hatturinn, Akureyri
Ljótu hálfvitarnir á Græna hattinum
Þeir mættir aftur á Græna hattinn, hálfvitalegri en nokkru sinni. Í þetta skiptið ætla þeir að reyna að segja eitthvað gáfulegt og bara spila lög sem hafa mannbætandi áhrif á viðstadda. NOT!
1.500 kr. inn. Húsið opnar kl. 21.00.
3.október 2009 - kl. 22.00
Græni hatturinn, Akureyri
Ljótu hálfvitarnir á Græna hattinum aftur
Það sem hefur oft gerst áður getur alltaf gerst aftur...
1.500 kr. inn. Húsið opnar kl. 21.00.
6.nóvember 2009 - kl. 21.30
Nasa, Reykjavík
Ljótu hálfvitarnir og Hvanndalsbræður á NASA
Enn á ný leiða saman sínar sílspikuðu bykkjur, Hálfvitarnir ljótu og Bræðurnir úr Hvanndal. Fyrri tónleikar helgarinnar verða í sjálfri höfuðborginni, á stað þeim sem kenndur er við geimferðastofnun Bandaríkjana, NASA við Austurvöll. Lofa hljómsveitirnar geðveikt miklu stuði og að væmnum og rómantískum lögum verði haldið alveg innan skynsamlegra marka.
Forsala hefst innan tíðar en hún verður á midi.is
Tónleikarnir hefjast kl. 21.30 og húsið opnar kl. 20.30.
Miðaverð er 2.000 kr.
7.nóvember 2009 - kl. 21.30
Miðgarður, Skagafirði
Ljótu hálfvitarnir og Hvanndalsbræður í Miðgarði
Eftir kvöld í borg óttans halda hinir síkátu Hvanndalsbræður og vinir þeirra, hinir glaðbeittu Ljótu hálfvitar, út á hina frjálsu landsbyggð. Þar er loftið hreint og fuglasöngur eina hljóðið sem heyrist að öllu jöfnu.
Ferðinni er heitið í Skagafjörð, nánar tiltekið í hið fornfræga félagsheimili Miðgarð og er ætlunin að skemmta heimamönnum jafnt sem aðkomufólki með hljóðfæraleik og söng.
Tónleikarnir hefjast kl. 21.30 og kostar 2.000 krónur inn. Forsala hefst innan skamms á midi.is, Eymundsson í Hafnarstræti á Akureyri og þar sem það hentar heimamönnum sennilega best, í Ólafshúsi á Sauðárkróki...
20.nóvember 2009 - kl. 20.30
Ráðhúsið, Þorlákshöfn
Ljótu hálfvitarnir í Þorlákshöfn
Hálfvitar halda til hafnar Þorláks og spila þar í Ráðhúsinu. Spila á allt að því kristilegum tíma (hvað sem það nú þýðir).
Aðgangseyrir er 1.500 kr.
27.nóvember 2009 - kl. 22
Rósenberg, Reykjavík
Ljótu hálfvitarnir á Rósenberg
Ljótu hálfvitarnir og Rósenberg eru jafn náttúruleg samsetning og sprungur og jökull. Eða gammur og hræ. Eða eitthvað sem er rosalega náttúrulegt. Þess vegna er þetta bara alltaf að gerast og enginn ástæða til að grenja yfir því. Um þessar mundir eru þeir (hálfvitarnir, ekki gammarnir) á fullu að æfa ný lög og hver veit nema einhver þeirra verði viðruð þarna.
ATH. að tónleikarnir byrja kl. 22.00 og það kostar 1.500 kall inn eins og oftast nær.
28.nóvember 2009 - kl. 22
Rósenberg, Reykjavík
Ljótu hálfvitarnir á Rósenberg - Vóóó, dejavú...
Já aftur. Hálfvitar og Rósenberg bara.
Byrjar kl. 22 og 1.500 inn.
6.desember 2009 - kl. 15.00
Salurinn, Kópavogi
Fjölskyldutónleikar Ljótu hálfvitanna í Salnum
Sunnudaginn 6. desember hyggjast Ljótu hálfvitarnir halda miðdegistónleika í Salnum í Kópavogi. Þetta er ekki síst hugsað til þess að aðdáendum hálfvitanna í yngri kantinum gefist kostur á að sjá þá á tónleikum en tækifæri til þess hafa ekki verið mörg hingað til. Á tónleikunum hyggjast þeir ljótu flytja öll sín hálfvitalegustu lög, bæði af plötunum tveimur og svo óútgefin. Það má í það minnsta ganga að því nokkuð vísu að smellir á borð við Son hafsins og Lukkutrollið munu hljóma. Á þessum árstíma er líka aldrei að vita nema jólalög skjóti upp úfnum kollinum.
Tónleikarnir hefjast kl. 15.00 og aðgangseyrir er 1.500 kr. Forsala er á www.midi.is.