2.janúar 2010 - kl. 21
Ýdalir, Aðaldal
Ljótu hálfvitarnir að Ýdölum
Ljótu hálfvitunum fannst sérlega góð hugmynd að hefja tónleika árið 2010 á stórtórleikum heima í héraði. Því bókuðu þeir Ýdali og ætla að sýna á sér allar sýnar fegurstu hliðar og nokkrar þar að auki. Leikin verða allskonar lög frá ýmsum tímabilum í lífi hálfvitanna og ekkert dregið undan.
Miðaverð er bara 1.500 kall og húsið opnar kl. 20.00.
Sjá nánar á Facebook
3.janúar 2010 - kl. 16
Laugarborg, Eyjafirði
Fjölskyldutónleikar í Laugarborg
Ljótu hálfvitarnir ætla að gefa yngstu aðdáendum sínum í Eyjafirði tækifæri á að koma á alvöru hálfvitatónleika með því að halda síðdegistónleika um fyrstu helgi nýársins. Þar verð spiluð lög af plötunum tveimur í bland við hálfvitaleg jólalög. Tilvalin skemmtun fyrir stórfjölskylduna.
Miðaverð er 1.500 kr og húsið opnar kl. 15.00.
PS. Bannað að koma með rakettur...
Sjá nánar á Facebook
5.febrúar 2010 - kl. 22
Græni hatturinn, Akureyri
Ljótu hálfvitarnir á Græna hattinum
Eins fyrirsjáanlegir og framsóknarmenn á fengitíma halda hálfvitarnir norður á Akureyri og taka eina af sínum alræmdu Grænahattshelgum. Nú eru þeir byrjaðir að leggja í nýja hljómsnældu og ætla að prufukeyra ilmandi ferskar og nýbakaðar lagasmíðar í bland súrt og reykt úr vafasamri fortíð.
Sem endranær er miðaverð 1.500 kall, forsala verður í Eymundsson, Hafnarstræti vikuna fyrir tónleika...
Sjá nánar á Facebook
6.febrúar 2010 - kl. 22
Græni hatturinn, Akureyri
Ljótu hálfvitarnir á Græna hattinum
Allt er þegar tvennt segir máltækið núna í kreppunni og það á ekki síst við þegar Hálfvitarnir spila á Græna hattinum. Sömu hálfvitar, sama stemmingin, aðeins breytt prógramm en það sem skiptir auðvitað höfuðmáli, nýr og ódrukkinn bjór...
Forsala í Eymundsson Hafnarstræti vikuna fyrir tónleika, miðaverð 1.500...
Sjá nánar á Facebook
19.febrúar 2010 - kl. 22
Rosenberg, Reykjavík
Ljótu hálfvitarnir á Rosenberg
Ja nú gætu einhverjir sagt að nóg væri komið af þessum hálfvitatónleikum á Rosenberg en þeir sem hafa kynnt sér málið vita betur. Ætlunin er að keyra á hæfilegri blöndu af nýjum, notuðum og ofnotuðum lögum og blaðra eitthvað inn á milli. Engin eldflaugavísindi svosem...
Miðar seldir í dyrunum á 1500 kall...
20.febrúar 2010 - kl. 22
Rosenberg, Reykjavík
Ljótu hálfvitarnir á Rosenberg
Tvöföld helgi og svona. Um að gera að spara rót því næstum öllum hálfvitum finnst það leiðinlegt. Prógrammið verður eitthvað pínu öðruvísi og kannski ekki alveg sömu gestir en að öðru leyti bara endurtekning á stemmingu og stuði...
Miðasala í dyrunum, 1500 inn...
12.mars 2010 - kl. 21
Rosenberg, Reykjavík
Reykjavík Folk Festival
Ljótu hálfvitar koma fram á þjóðlagahátíðinni Reykjavík Folk Festival ásamt 13 öðrum böndum. Það verður þjóðlegt stuð og allsherjar gleði. Svona er dagskráin:
Miðvikudagur 10. mars
Kl. 21:00 - Rósin Okkar
Kl. 22:00 - Fedorov
Kl. 23:00 - Sniglabandið - þjóðlagadeild
Fimmtudagur 11. mars
Kl. 21:00 - Gísli Helgason & Co
Kl. 22:00 - Gæðablóð
Kl. 23:00 - Hrafnar
Föstudagur 12. mars
Kl. 21:00 - South River Band
Kl. 22:00 - Varsjárbandalagið
Kl. 23:00 - Narodna Musika
Kl. 24:00 - Ljótu hálfvitarnir
Laugardagur 13. mars
Kl. 21:00 - Guitar Islancio
Kl. 22:00 - KK
Kl. 23:00 - Nesi Sjana og hinar kerlingarnar
Kl. 24:00 - Spaðar
2.apríl 2010 - kl. 21.30
Skjólbrekka, Mývatnssveit
Ljótu hálfvitarnir í Skjólbrekku
Fjórðu Páskana í röð eyðileggja Ljótu hálfvitarnir Föstudaginn langa fyrir Mývetningum og láta hina hátragísku píslargöngu líta út fyrir að vera heilsusamlegan spássértúr í bongóblíðu. Eins og endra nær er vettvangur ódæðisins félagsheimilið Skjólbrekka við Skútustaði.
Efnisskráin er hrein hörmung eins og ætlast er til á slíkum degi, fyrst og fremst frumsamið drasl sem engin hefur beðið þá um að semja og þeir virðast hafa gert af eintómri illkvitni.
Húsið opnar kl 20.30 og tónleikarnir byrja klukkutíma síðar. Það kostar 1500 kall inn, eins og fyrir fjórum árum síðan...
3.apríl 2010 - kl. 21.30
Fosshótel, Húsavík
Ljótu hálfvitarnir á Fosshótel Húsavík
Í fyrsta sinn síðan á Mærudögum dratthalast hálfvitar á gotstöðvarnar, synda sennilega upp Búðarána, gera stykkin sín og drepast á eftir. Eða var það Kyrrahafslaxinn? Skiptir ekki máli, laugardaginn sem Jesús var bara dáinn á, spila Hálfvitarnir rassinn úr buxunum í nostalgískri gleðivímu á Fosshótelinu á Húsavík og hvort þeir drepast á eftir eða ekki er bara þeirra einkamál.
Mayhemið byrjar klukkan 21.30 og húsið opnar klukkutíma fyrir það. 1.500 kall inn, ókeypis út...
8.apríl 2010 - kl. 21
Logaland, Reykholtsdal
Ljótu hálfvitarnir í Logalandi
Það hlaut að koma að því að Hálfvitar skakklöppuðust aftur upp í Borgarfjörð til að ambagast eitthvað en það var nú svo sem ekkert alveg sjálfgefið að það yrði aftur í Logalandi því Borgarfjörðurinn er stór og fullur af félagsheimilum. Engu að síðu varð það nú úr og Hálfvitarnir halda þar nú í annað sinn tónleika. Þar er komið kjörið tækifæri fyrir alla Borgfirðinga að hittast, bera saman bækur sínar og hneykslast á vitleysingunum að norðan.
Tónleikar hefjast kl. 21 en húsið opnar klukkutíma fyrr. 1500 kr. inn...
5.júní 2010 - kl. 21
Íslenska óperan
Útgáfutónleikar Ljótu hálfvitanna í Íslensku óperunni
Þann 5. júní n.k. munu Ljótu hálfvitarnir fagna útgáfu þriðju hljómplötu sinnar með tónleikum í Íslensku óperunni. Platan ber, líkt og fyrri plötur þeirra, nafnið Ljótu hálfvitarnir en þó má þekkja hana frá eldri plötum á grænum lit sem er áberandi á umbúðum hennar og svo á því að ekkert af lögunum á henni er á hinum plötunum.
Tónleikarnir hefjast kl. 21 og verður efni af nýju plötunni uppistaðan í efnisskránni. Þó verður lætt inn vinsælum slögurum af eldri plötum eftir því sem ástæða þykir til. Einnig munu hálfvitar kalla til liðs við sig ýmsa af þeim sem lögðu þeim lið við gerð plötunnar og má reikna með að ringulreiðin á sviðinu verði jafnvel enn meiri en venjulega þegar hálfvitar eiga í hlut. Sem er þó talsverð.
Miðaverð er 2.500 kr.
MIÐASALA ER HÉR Á MIDI.IS
http://midi.is/tonleikar/1/5539/
12.júní 2010 - kl. 21
Ýdalir, Aðaldal
Útgáfutónleikar Ljótu hálfvitanna að Ýdölum
Þann 12. júní n.k. munu Ljótu hálfvitarnir fagna útgáfu þriðju hljómplötu sinnar með tónleikum að Ýdölum, Aðaldal, S-Þingeyjarsýslu. Platan ber, líkt og fyrri plötur þeirra, nafnið Ljótu hálfvitarnir en þó má þekkja hana frá eldri plötum á grænum lit sem er áberandi á umbúðum hennar og svo á því að ekkert af lögunum á henni er á hinum plötunum.
Tónleikarnir hefjast kl. 21 og verður efni af nýju plötunni uppistaðan í efnisskránni en þó verður lætt inn vinsælum slögurum af eldri plötum. Einnig munu hálfvitar kalla til liðs við sig ýmsa af þeim sem lögðu þeim lið við gerð plötunnar og má reikna með að ringulreiðin á sviðinu verði jafnvel enn meiri en venjulega þegar hálfvitar eiga í hlut. Sem sagt, nánast eins og útgáfutónleikarnir fyrir sunnan helgina áður, bara miklu norðar...
Miðaverð er 2500 kr.
Forsala verður í Bókabúð Þórarins Stefánssonar á Húsavík og á midi.is. Fljótlega...
1.júlí 2010 - kl. 22
Græni hatturinn, Akureyri
Ljótu hálfvitarnir á Græna hattinum 1. hluti
Enn ein Ljót hálfvita helgi á Græna hattinum og í þetta sinn er hún tekin snemma. Akureyrar frumflutningur á fullt af lögum af nýju plötunni en jafnframt talsvert af endurflutningi á lögum af gömlu plötunum. Og svo allt þar á milli. Nýji hálfvitabolurinn verður til sölu og auðvitað allir diskarnir, hvað sem þeir eru nú orðnir margir.
Byrjar kl. 22 og það kostar 1500 kr. inn.
Húsið opnað kl. 21.
Forsala í Eymundsson Hafnarstræti, Akureyri.
2.júlí 2010 - kl. 22
Græni hatturinn, Akureyri
Ljótu hálfvitarnir á Græna hattinum 2. hluti
Það veit hvert mannsbarn að þegar Ljótu hálfvitarnir halda tónleika á Græna hattinum, halda þeir aðra tónleika daginn eftir. Þetta er fyrst og fremst vegna þess að þeir eru latir og nenna ekki að róta. Svo hefur nú viljað brenna við að það mætti aftur fullt af fólki þannig að það má segja að þessi leti sé allt að því réttlætanleg. Þeir mega þó eiga það að þeir spila ekkert endilega sömu lögin. Sum jú reyndar, en alls ekki öll...
Byrjar kl. 22 og það kostar 1500 kr. inn.
Húsið opnað kl. 21.
Forsala í Eymundsson Hafnarstræti, Akureyri.
3.júlí 2010 - kl. 22
Græni hatturinn, Akureyri
Ljótu hálfvitarnir á Græna hattinum 3. hluti
Það sem er svo kannski ekki alveg týpískt við þessa tónleikaröð á Græna hattinum er að eftir tónleika tvö koma tónleikar þrjú. Þetta stafar af skyndilegum á áhuga Hálfvitanna á eðlisfræði, þ.e. þá langar að vita hvert tónleikalegt þanþol Akureyringa er. Þar sem alltaf hefur verið uppselt á tvöfaldar helgar í undanförnum heimsóknum bæta þeir þriðju tónleikunum við. Reikna reyndar alveg eins með að enginn mæti á þá...
Eins og hinir tónleikarnir hefjast þessir kl. 22 og það kostar líka 1.500 á þá.
Húsið opnað kl. 21.
Forsala í Eymundsson Hafnarstræti, Akureyri.
28.júlí 2010 - kl. 21
Höllin, Vestmannaeyjum
Hvanndalsbræður og Ljótu hálfvitarnir í Eyjum
Árum saman hafa þessar tvær af vinsælustu „norðlensku" hljómsveitum landsins, leitað leiða til að halda sameiginlega tónleika í höfuðstað Vestmannaeyjaklasans en þrátt fyrir ráðleggingar frá helstu stjörnuspekingum, fjármálaráðgjöfum og borðtennislandsliðinu hefur ekki tekist að koma saman trúverðugri dagsetningu á slíkan konsert.
Þangað til núna. Skyndilega skýst upp á yfirborðið miðvikudagurinn 28. júlí og einhvern veginn bara smellpassar, svona mátulega rétt fyrir Verslunarmannahelgina en um hana ku gjarnan vera fjör í Eyjum. Staðurinn er að sjálfsögðu Höllin, tímasetningin 21.00 og miðaverð í forsölu 2.500 kr. þannig að það margborgar sig að vera tímanlega í því að tryggja sér miða þar sem miðaverð við dyrnar er 3.500 og þar með er verið að eyða alltof miklum peningi í vitleysu.
Báðar hljómsveitirnar hyggjast spila alls konar lög og segja brandara sem hafnað hefur verið af ritstjórn Séð og heyrt.
Forsala á midi.is og hjá Volcano Eldbakan.
29.júlí 2010 - kl. 22
Rosenberg, Klapparstíg
Ljótu hálfvitarnir á Rosenberg
Ljótu hálfvitarnir loksins á Rosenberg enn og aftur. Ekkert meira um það að segja...
30.júlí 2010 - kl. 22
Rosenberg, Klapparstíg
Ljótu hálfvitarnir á Rosenberg
Já við spilum langoftast tvö kvöld í röð á Rosenberg, engin ástæða til að vera svona hissa...
31.júlí 2010 - kl. 21
Félagsheimilið, Flúðum
Ljótu hálfvitarnir á Flúðum
Ljótu hálfvitarnir enda Verslunarmannahelgartúrinn sinn á Flúðum þar sem Hrunamenn ráða ríkjum. Þar er ætlunin að halda tvenna tónleika líkt og gert var með svo prýðilegum árangri í fyrra. Spiluð verða lög af öllum plötunum sem hálfvitar hafa nokkurn tímann gefið út og áhersla lögð á að hleypa dýrinu út.
Húsið opnað kl. 20.00, tónleikar byrja kl. 21.00 og miðaverð er 2.000 kr.
1.ágúst 2010 - kl. 21
Félagsheimilið, Flúðum
Ljótu hálfvitarnir á Flúðum - Aftur...
Lokatónleikar Verslunarmannahelgartúrs Ljótu hálfvitanna verða í Félagsheimilinu á Flúðum, enda finnst þeim voða þægilegt að spila tvö kvöld í röð á sama staðnum og þurfa ekki að róta. Stefnt er á að toppa allt sem gert hefur verið til þessa í taumlausri en þó vandaðri spilamennsku...
Húsið opnað kl. 20, tónleikar byrja kl. 21 og miðaverð er 2000 kr.