Beint á leiðarkerfi vefsins

Tónleikar

<< Fyrra Tónleikar í apríl 2010 Næsta >>
Sjá tónleika eftir árum | mánuðum | dögum

2.apríl 2010 - kl. 21.30

Skjólbrekka, Mývatnssveit

Ljótu hálfvitarnir í Skjólbrekku

Fjórðu Páskana í röð eyðileggja Ljótu hálfvitarnir Föstudaginn langa fyrir Mývetningum og láta hina hátragísku píslargöngu líta út fyrir að vera heilsusamlegan spássértúr í bongóblíðu. Eins og endra nær er vettvangur ódæðisins félagsheimilið Skjólbrekka við Skútustaði.

Efnisskráin er hrein hörmung eins og ætlast er til á slíkum degi, fyrst og fremst frumsamið drasl sem engin hefur beðið þá um að semja og þeir virðast hafa gert af eintómri illkvitni.

Húsið opnar kl 20.30 og tónleikarnir byrja klukkutíma síðar. Það kostar 1500 kall inn, eins og fyrir fjórum árum síðan...

3.apríl 2010 - kl. 21.30

Fosshótel, Húsavík

Ljótu hálfvitarnir á Fosshótel Húsavík

Í fyrsta sinn síðan á Mærudögum dratthalast hálfvitar á gotstöðvarnar, synda sennilega upp Búðarána, gera stykkin sín og drepast á eftir. Eða var það Kyrrahafslaxinn? Skiptir ekki máli, laugardaginn sem Jesús var bara dáinn á, spila Hálfvitarnir rassinn úr buxunum í nostalgískri gleðivímu á Fosshótelinu á Húsavík og hvort þeir drepast á eftir eða ekki er bara þeirra einkamál.

Mayhemið byrjar klukkan 21.30 og húsið opnar klukkutíma fyrir það. 1.500 kall inn, ókeypis út...

8.apríl 2010 - kl. 21

Logaland, Reykholtsdal

Ljótu hálfvitarnir í Logalandi

Það hlaut að koma að því að Hálfvitar skakklöppuðust aftur upp í Borgarfjörð til að ambagast eitthvað en það var nú svo sem ekkert alveg sjálfgefið að það yrði aftur í Logalandi því Borgarfjörðurinn er stór og fullur af félagsheimilum. Engu að síðu varð það nú úr og Hálfvitarnir halda þar nú í annað sinn tónleika. Þar er komið kjörið tækifæri fyrir alla Borgfirðinga að hittast, bera saman bækur sínar og hneykslast á vitleysingunum að norðan.

Tónleikar hefjast kl. 21 en húsið opnar klukkutíma fyrr. 1500 kr. inn...


Hægri dálkur